this is me, take it or leave it, hate it or love it...dont try to change it..!
Dagsetning
22. mars 2010
14.02.2008 23:43:27 / anrib

KOMIN MEÐ NÝTT BLOGG






birnaarmey.bloggar.is

 

muna að kvitta á nýju síðunaþ

 

kv.Birna


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.02.2008 23:13:39 / anrib

á ÍSlandi er gott að vera.

helló

já ég fékk ósk mín bara uppfyllta þegar ég óskaði þess að sumarið myndi kom okkur á óvart og koma bara á morgunn...já þegar ég vaknaði í morgun var bara sól og blíða..við fórum á stuttermabol og stuttbuxum í vinnuna og eftir vinnu fórum við í sund og á bensó að kaupa ís, og eftir herlegheitin, var skellt á grillið og grillað þessa dýrindi máltíð og hún borðuð úti og rennt henni niður með ísköldum thule í gleri, svo sátum við vinirnir úti að sötra og horfa á sólina setjast þegar ég var búin bera aloe vera á krakkana því þau brunnu í allri sólinni og koma þeim glöðum í rúmið eftir heitan og góðan dag....já eða svona var veðrið NÆSTUM ÞVÍ !! eða EKKI !!!

núna man ég hvaðan þetta lag, andvaka, kemur, það var í undankeppni fyrir júróvijon í fyrra eða hitt í fyrra. gott lag.

Ég er svona að hugsa um að breyta smávegis um lífstíl og fara aðeins fyrr að sofa á kvöldin, þá væri maður ekki  svona sjúklega þreyttur milli 3 og 6 á daginn, er stundum að drepast úr þreytu á þessum tíma dags....bjakk.

Leiknum var frestað bara fram á sunnudag...skil það nú ekki, það er búið að vera svo yndilsegt veður í allan dag...þeir rata örugglega bara ekki hingað í þessu Hamar liði eða hvað það hét....hverjum dettur í hug að skýra lið hamar....þá er ég með tillögu um að breytna nafni okkar í...tja...til dæmis þeytari, meikar jafn mikinn sens og hamar, en þetta hlítur að vera einhver skammstöfun, anskotin hafi það....já hlítur að vera bara, kaupi þetta hamars nafn ekki.

jæja best að byrja nýja lífstílinn með brosi á vör og koma sér í rúmið....

L8ter


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.02.2008 01:29:54 / anrib

oogg nú er ég andvaka...

eftir að hafa farið frá þér...andvaka.....hvaða lag er þetta aftur ??

 

well well gaman að vera til við hjónin erum hamigjusöm ( ég og María) heheh) það er alveg að koma helgi sem verður alveg yndisleg !!!

Leikur á morgunn og ætli maður reyni  ekki að mæta á hann með Maríusi mínum 8)

Það er pabbahelgi framundan og fer öll helgin í góðan mat... út að borða kannski, svefn, leti og video...oohh gerist ekki betra:$

Hafdís er orðin hress bara, fór með hana til Þóris háls, nef og eyrnalæknis í kvöld og verða nefkirtlarnir sem ég skapaði kvaddir og rör tekinn inn í klíkuna í staðin....piiff

jæja er orðin  þreytt, ætla að heilsa upp á börk og breka a.k.a kodda og sæng...

hilsen

Birna


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.02.2008 13:20:57 / anrib

4. feb.

jæja jæja

Mánudaur til mæðu - Hafdís Birta er lasin, með eyrnabólgu og hita, átti voða erfitt í gær greyið, en ég fer mað hana til læknis i dag og svo til sérfræðings á Miðvikudaginn, er eiginlega að vona að hún fái barsa rör, þetta er ansi þrautseig eyrnabólga.

En annars er mál mála þorrablótið sl. helgi, það var ekkert smá gaman og það verður erfitt að trompa þetta djamm, enda er ég að drepast úr harðsperrum í löppunum, sennilega eftir dans og labb á hælum....það var skemmt sér langt fram á rauða nótt, Hótelið er orðið ekkert smá flott og bjart yfir öllu, skemmtiatriðin voru alveg brilliant, miklu betra en í fyrra, maturinn æði eða þannig, jú allavega hangikjetið, en jafningurinn klikkaði nú einhvað. sem sé geggjað kvöld!!! þeir sem ekki mættu misstu af miklu, já og ekki má gleyma algerlega máli mála !! María Guðrún var valin í nefnd og Nonni mæju á móti henni sem single parið, ekki amalegt það !! svo maður neyðist til að mæta á næsta ári.

jáw lífið er bara skemmtilegt, nóg skemmtilegt framundan, vona bara að sumarið komi okkur á óvart og komi bara snemma eins og á morgun eða einhvað... væri nú ekki slæmt sko.

en þarf að þjóta..já meðan ég man þá er ég að hlaða inn myndum á myspacið mitt.....

L8ter

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.01.2008 22:18:55 / anrib

Rusla Birna !!!

kveldið.

já þá er að ræða eitt af nýjustu áhugamálum mínum, að flokka rusl, eða öllu heldur að hugsa áður en ég hendi, þetta áhugamál mitt fæddist held ég bara upp á bæjarskirfstofu, það er svo gaman þegar aðrir velja svona hobby handa manni, en annars leggst þetta ágætlega í mig, get samt ekki sagt að ég sé neitt hoppandi af spenningi, en ég byrjaði semsé í dag að flokka og náði í allar  ruslatunur sem ég fann, ena búin að hugsa mikið um hvernig maður vill nú hafa rusla skápin sko...já ég er með 5 ruslatunnur þar !!!!

svo kíkti ég til Maríu í gær...já veðrið úti, alveg sól og blíða maður, við kíktum á bensó og vildi hafdís endilega koma með inn og ég´tók hana með, ætlaði aldrei að geta opna hurðina á bílnum í fyrsta lagi, en tókst að lokum, svo var mál mála að komast aftur út í bíl á móti vindi, og ég legg í hann með barnið í fanginu í viking stígvélunum mínum og labba út á klakan og byrja að labba og RENNA og ræð ekkert við mig, renn bara af stað standandi út á miðju bensó plani með krakkan í fanginu, það sem varð mér til bjargar var að góðhjartað frændfólk mitt sem var hér í bæ til að taka þátt í hinum árlega ættarþorrafagnaði kvöldið áður, var einmitt statt á bensó, þeir Stebbi stef. eða pétur man aldrei hvað hann heitir, allavega góður kall og svo líka Garðar hennar kristrúnar, já þeir nánast báru mig úr í bíl.....hehe...þetta var soldið fyndið!!!

En mál mála er algerlega hið magnaða þorrablót á næstu helgi...kom nu reyndar smá mikið stórt babb í bátinn hjá mér en ég get vonandi reddað því......mig hlakkar mjög mikið til ef ég kemst til að sjá gamla settið mitt á sviði.

kítki í ammælisparty til sissu vinnufélaga sem er einmitt líka í nefnd á sl. laugardag , kíktum svo á ballið, var alveg ágætt bara, var samt ekkert mjög seint á ferðinni heim.....

en jæja ætla að fara og sinna msn vinum mínum:D

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.01.2008 21:47:57 / anrib

Helvítis pirringur í manni.

sælar

já mér bárust þær sorgarfréttir er ég kom heim úr vinnunni að sykurpúðinn hann Heath Ledger væri látinn, mjög sorglegt, enda missti maður marga lítrana af slefi við það að horfa á ten things I hate about you hérna í denntid, megi hann hvíla í friði blessaður sem og Bobby fischer frændi minn...

vá, maður er orðin vel heitur fyrir þorrablótinu þann 2 feb. það verður vonandi gargandi snilld, enda von að spila, þeir urðu vinir Maríu í fyrra, spurning hvort þeir muni eftir henni og gefi okkur svona v.i.p passa, hver vill vera vinur okkar ???? no one !!! ....hehe:haha:

ég hata snjó !! þess vegna hefur mér liðið hrottalega undafarna daga, held ég sé meira að segja að fá ofnæmi fyrir honum, enda var ég ekkert smá glöð þegar ég sá rignignar dropna detta niður í gær, þá gat maður hoppað í slabbinu í viking stígvélunum mínum, eða mömmu;)

jæja ætla að hætta, drepast úr þreytu.

Góða nótt.


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.01.2008 16:16:20 / anrib

ó vei, bara viðbrögð.

sælar.

jæja margir eflaust orðnir handalausir eftir öll kommentin....alveg öll 6, vill sjá meira !!!

Já margt hefur gert síðan síðast, saumaklúbbur, eyrnabólga, snjóað meira, og margt fl.

Ég var að hugsa um það um daginn, hversu skemmtilegt þetta ár mun verða, ég er búin að ákveða marga skemmtilega hluti alveg fram til október !!

Janúar: hann er alltaf ömulegur

febrúar: þorrabót, sem maður mætir auðvita á, bæði á hóteli og skili, svo er Ármann að verðs 2ja ára þann 22.

Mars: þá koma páskarnir með öllum sínum yndislega glæsileika, fríi,miklu áti og föstudags langa balli...pjúra sneld !!

Apríl: svíþjóð, here i come !! verð í 5 daga í svíþjóð, með vinnunni, það verður án efa þrusu ferð, enda þrusu fólk á ferð, ekki satt ?? ;)

Maí: ég á afmæli 3 maí, sem er lauagrdagur, og ætla ég að bjóða í smá teiti, hef ekki boðið í ammæli  síðan ég var 18 ára. eða sigmar hélt þá fyrir mig svona surprise veislu, sem var ekkert smá gaman !!! en ég er búin að bjóða maríu, villa og svan, sem lofuðu að spila á gítarinn fyrir mig..hehe....ég tala eins og ég sé að verða 40 ára....en 24 er það heillinn.

Júní: sumarið komið og sjómannadagshelginni veður eytt í örmum stæltra og fallegra sjómanna á skagaströnd, er það ekki María?? ertu ekki ánægð með mig núna. en þetta er ein skemmtilegasta helgi þar í bæ á árinu, enda skagstrendingarnir allir, tveir eða þrír sem búa þarna sjómenn !!!! heheh :haha:...ddeemm ég er fyndinn.

Júlí: bara yndislegt sumar og ekkert neitt planað sérstaklega..enþá...

Ágúst: sumar, verslo, dönsku og toppur ársins SPÁNN, við maria, munum fljúga til spánar þann 21 ágúst og vera í viku, ætlum að liggja í leti og njóta lífsins þar, ætlum að vera á costa del sol8)......gleði, gleði, gleði !!!!

september: Hafdís verður 4 ára og réttir og allt sem þeim fylgir :D

þar sem að ég er forfallinn bloggfíkill þá get ég ekki hætt að blogga, hvar ætli maður fari í meðferð við því ?? hhhmmm....

jæja ætla að reyna að leggja mig aðeins.....enda kíkti maður í menninguna í nótt og varð úr hin heimsins besta skemmtun....en ekki eins skemmtilegt í dag8|

L8ter


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 22:55:10 / anrib

nenni ekki þessu bloggi fyrst maður fær ENGINN viðbrögð.....

 

** Takk fyrir pent, punktur. **


» 6 hafa sagt sína skoðun

09.01.2008 13:51:16 / anrib

Betra er seint en aldrei,

sit hérna heima að jafna mig eftir magapest gærdagins, er með smá ólgu enþá og slappleika.....oohhh...já ef 2008 á ekki eftir að fella mig þá verð ég hissa...ein orðin mjög pirruð á öllu heilsuleisunu:evil: enég ætla að mæta í vinnuna á morgunn, glöð og ánægð eins og ekkert hafi í skorist, þýðir víst lítið anna, María gaf mér öll snítibréfin sín, því hún er hætt að nota þau:D svo ég kláraði þau í sjálfsvorkun minni og líður betur..hehe..

EENN annars er ég með STÓR frétt........ég er komin með myspace, mjá já kellan hefur ekki við að upplýsa alþjóð um hin ýmsu mál,  myspace.com/birna_armey  það allra heitasta í dag, kann lítið á þetta og er hún öll hálf krumpuð greyið síðan mín, en það stendur til bóta, er einmitt búin að vera að hlaða inn jólamyndunum núna ca. sl. 8 timana eða svo, gegnur einhvað voða hægt....:S sko María þetta getur maður, ég lét undan miklum hópþrýsting Maríu Guðrúnar, ég þoldi ekki lengur þessi nirðrandi hróp hennar um að ég væri "púkó" að vera ekki með mysapce...iisss skaut henni ref fyrir rass og bjó til eitt stykki. og ég á víst einn vin á myspace og hann heitir því skemmtilega nafni Tom, vá geggjað vinsæl !!!

Annars er bara komin miðvikudagur heillinn sem þýðir það að vikan er hálfnuð og helgi framundan, sem verður eflaust nýtt í einhver herleg heit, þar sem að maður er allur krambúleraður getur maður litið gert, svo ég auglýsi hér með eftir skemmtilegu fólki, sem nennir að spila hin ýmsu spil og hlusta á tuðið í mér...er mjög góð að spila, sérstaklega veiðimann og ólsen óslen, póker er bannaður í mínum húsum því ég kann hann ekki, ekki þá nema fatapóker, en þá er það skilyrði að ég verði áhorfani og "meðspilararnir" líti vel út !! punktur.

jæja best að standa upp og labba nokkra hringi um íbúðina, má ekkert sofna í dag svo ég sofni í kvöld á skikkalegum tíma, það er nú samt eingöngu maríu að kenna að ég fari seint að sofa!! kvikindið er gasprandi á msn langt fram á nótt....og alltaf nóg að tala um skemmtilegt, enda nóg skemmtilegt framundan hjá okkur stöllum...újé....meira af því seinna.

L8ter


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.01.2008 16:09:41 / anrib

Jahérna hér jónas gamli.

já sælar veriði.

óheppnin ætlar að elta mig á nyju ári, er búin að hósta öllu sem ég á og meira til eins og einu stk, rifbeinu, og get ég sko svarið fyrir það að ég mydni vilja eignast barn á klukkutímafresti í staðinn fyrir þennan sársauka, þetta er sennilega mesti sársauki sem ég hef fengið, illt þegar ég tala, finn meira að segja verki þegar ég dreg inn andann, og bara name it og það er vont, en heljarmennið ég, vaknaði á mínum rétta tíma í morgunn og græjaði hlunkana mína og við drifum okkur í vinnu og skóla, ég stoppaði ekki lengi, því allt í einu varð ég glær í framan og leið mjöögg illa, svo ég dreif mig heim og ætla að vera heima á morgunn líka allavega, ooohhh...þetta er ekki gott....svo er það allra versta að ég sef svo illa !!! já vorkenni sjálfri mér ekki oft, en núna hef ég aldrei vorkennt hvorki mér né nokkrum manni svona mikið...hehe...já þetta er ógeðslega sárt !!!!!

en nóg af sjúkrasögum af mér....hehe.....tja...ég bara veit ekki hvort ég hafi einhvað meira að segja, boltinn bara rúllar alla daga.

mig langar bara til spánar og liggja þar alla daga og hreinsa hugann og láta mér líða vel, löngu orðið tímabært að ég fái þá sneið af kökunni.

jæja ætla að fara upp í rúm og lesa or some áður en krakkarnir koma...og systir mín sem ætlar að hjálpa mér, með bað, kvöldmat og háttatíma.......veit ekki hvar ég væri stödd án þessarar yndislegu fjölskyldu minnar!!!! maður er alltaf að sjá betur og betur hvað það er gott að eiga góða að og það á ég sko !!!

L8ter


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.01.2008 18:59:52 / anrib

síðasti dagur jóla.

sælar.

Þá eru jólin að renna sitt skeið þetta skiptið, sem er ágætt, Brenna í kvöld já í kvöld kl. 20.30, hver ákvað að vera heimskur og halda hana svona seint ??? nei ég bara spyr !! hefði verið hentugra að hafa hana eins og kl.18.00, ég meina öll börn þurfa að vakna í skóla og leikskóla....eða af hverju var hún bara ekki í gær!! jæja mátt til að væla pínu.

En ég hef verið að skoða blogg vina og aðra og sé að sumir skrifa annála yfir sl. ár, ég fór að hugsa...hhmmm.... þetta er sniðugt sbo hugsaði ég og hugsaði og MAN EKKERT hvað ég var að gera frá jan- júl.....hvernig man fólk þetta. ég rugla saman bara mörgum árum. enda er ég orðin gufu rugluð.

ég fór seint að sofa í gær eins og alltaf, þetta msn, ekki vinur minn núna í þreytunni, en var góð vinur minn í vökunni í nótt.

ég og Ármann erum bara tvö í kotinu núna, hafdís skellti sér í veislu hjá forsetanum, skellti mér svo á mostra leik í dag, sem var hin mesta skemmtun...hehe.

jæja ætla að töfra fram einhvern kvöldmat handa okkur, megið svo alveg kommenta,  ætti nú varla að drepa ykkur.

L8ter


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.01.2008 11:05:01 / anrib

5.janúar

daginn.

jæja langaði að skella inn eins og einu bloggi.

ég er ekki að komast í þessa blessuðu rútínu aftur eftir hátíðarnar, við sofum öll út og förum öll seint að sofa, erfitt líf!!

síðasti dagur jóla á morgunn og mikið er ég feginn, er orðin leið á þessum jólaljósum í glugganum hjá mér, það verður svo erfitt að þrífa þá og er rykið orðið allsráðandi í glugganum, ég reif nú úr stofu glugganum strax 1 jan og þref hann, svo tek ég rest niður í dag, allavega jólatréð, sem tekur um það bil alla stofuna, vegna stærðar, en það er svo fallegt greyið, vorkenni því að þurfa að fara í endurvinnsluna, en það birtist mér kannski einn daginn sem fréttablaðið, hver veit !!! það yrðu skemmtilegir endurfundir.

Ég gaf krökkunum í gær latabæ nr. 6 á dvd og hafdís var rosa sátt við það og svaf meira að segja með diskinn upp í rúmi í nótt, passar vel upp á sitt sko...hehe.. hún er annars búin að vera veik, fékk töluverða eyrnarbólgu í bæði eyru og er mikið kvefuð og hita, en var nú hitalaus í gær, en slöpp, ætla að halda henni heima í dag líka mest megnis svo hún geti farið á brennu á morgunn.

Annars er bara allt gott að frétta, Ármann er hress og sprækur að vanda, búinn að hrista nánast kvefið af sér, ég er aftur á móti enþá að drepast og er núna komin með einhver einkennilegan verk við neðstu rifin hægra meginn, fékk þetta í hóstakasti í gær, en ég er með púst sem hjálpar mikið til.

jæja það er eintóm gleði hér í dag því það er nammidagur...hehe...

L8ter


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.01.2008 21:56:51 / anrib

1. janúar 2008

já, þá þarf maður að venja sig á að skirfa 2008.

Gleðilegt ár allir saman !!

Nýja árinu var hent í okkur með hávaða roki og rigningu....isss..eru það nú áramót, ef ég hefði einhverju fengið að ráða, þá hefði ég frestað áramótunum um viku og allir hefðu verið í fríi þessa frestunar viku, nema þá verslunarfólkið í Bónus og á Bensó, því það er það allra nauðsynlegasta í bransanum í dag.

En við krakkarnir + Halli vorum hjá mömmu og pabba í gærkvöldi, borðuðum þennann líka geggjaða kalkún, já þeir eru ljótir en góðir, djöfull var hann góður, þess skal getið að ég hef aldrei fengið þetta afbrigði af fugli hjá mömmu og pabba áður svo fá þau bara fullt hús stiga fyrir þessa frammistöðu.....já og nóg um það, en hvað varðar mín yndislegu börn, þá fóru þau að sofa rúmlega 01.00 í gær og sváfu til hádegis, núna í kvöld er sami bragur á, Ármann er í hoppandi fjöri upp í rúmi og öskrar af öllum sínum sálar kröftum þegar hann heyrir svo lítið sem einn sprengju hvell úti...hann er með lítið hjarta og hræðist ekkert meira þessa stundina en rakgettu hvelli, ekki gott fyrir mig og mína geðheilsu, Hafdís er sofnuð, enda alger engill þar á ferð.

Já og held ég titilinum um aumingjaskap ársisn, ég nennti ekki á snæfellsball og þeir sem halda það að ég hafi stigið einum fæti út í þetta kvikindilega veður sem var í nótt!! á hvað lyfjum eruð þið ?? nee...en sökum lélegrar heilsu og veður nennti ég ekki út, var bara heima með spólu sem á endanum ég sofnaði yfir, mjög næs bara.

Ég er farin að hlakka til þorrablótsins, enda alger aðall þar í nefnd eins og gamla settið, Björn Ásgeir, Nanna, Sissa og Palli, Ásta og Rabbi gamli...alger aðall, erin gott að nokkur ´kíló verði fokinn, enda byrjuð að pæla í kjól og hvítu, og er planið að geyma allt djamm þar til þá og taka bara vel á því.....hljómar vel en samt einhvað svo...þið vitið...vvvvóóóó.....

En ætla að taka á honum stóra mínum í mataræðinu attur eins og var farið að ganga vel í haust og fyrir jól, byrja attur í ræktinni og dansa gleðidansinn.

Jæja ætla að sinna þessum syni mínum sem kallar hástöfum.

Adios


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.12.2007 18:13:23 / anrib

næst síðasti dagur ársins runninn upp....

og ekki var það gæfulegt þegar maður vaknaði í morgunn og leit út um gluggann, já sæll það er sko lægð yfir landinu.

var einmitt að lesa á mbl.is um björgunarsveitir sem fóru upp á langjökul að bjarga jeppaköllum sem voru svo fastir þar, ég meina þetta var heil hjörð af fólki, einir 7 jeppar upp á jökli og spáin svona, en þar var vindurinn mældur 50-60 m/sek og 100 m/sek í hviðum.......já 100 m/sek !!!!! svo er maður að grenja yfir einhverjum 15 m/sek.......iisss....svona kallar sko.

Já ég kíkti aðeins út í gær og var það mjög rólegt og gott í góðra vina hópi......

Svo er geggjað ball í kvöld sem ég ætla ekki á, nenni því engann veginn, Hafdís vediktist sl. nótt og er enþá veik greyið, svo það varður bara, spóla, nammi, ostar, snakk í kvöld, ásamt góðri heilsu á morgunn.,......ekki  slæmt, Halli ætlar að koma og borða hjá okkur á eftir og örugglega glápa á imbann með mér í kvöld, verðurm svo öll saman um áramótin hjá ma&pa eins og um jólin, enda allir góðir vinir, ekki annað að ætlast þegar svona skemmtilegt fólk hittist....hehe....

Það verður víst annað eins skíta veður á morgunn og kannski enginn brennna eða neitt, maður tekur þá bara út áramótin á nýársdag, það er ekkert verra, og ætla ég ekki heldur að kíkja út á lífið annað kvöld, það er ekki að virka á áramótum þegar maður á börn finnst mér......en hvað veit ég svosem.

Ég ætla að óska öllum gleðilegs árs og óska öllum farsældar á nýju ári nema kannski örfáum útvöldum...hehe....

þar sem að þetta er minn síðasti pistill á þessu ári þá þykir mér það mjög sorglegt, ég fæ alltaf svona "sorgar" tilfinningu um áramót.....þið skiljið, árið búið og alveg heilt ár framundan, allt núllast attur.....oohhh...

En það styttist í þorrablót og eftir það páska, svo svíþjóð í apríl í 5 daga, svo kemur bara afmælið mitt sem ég er mikið að hugsa um að halda upp á bara svona grínsisn vegna, enginn spes aldur eða neitt, svo kemur sumarið með allri sinni dýrð og skemmtileg heitum. plús það að á næsta ári verður Ármann minn 2ja ára eða 22 feb og Hafdís verður hvorki meira né minna en 4 ára !!! það finnst mér það allra furðulegasta, hún er bara að verða "fullorðin".

jæja nóg af slúðri....ég segi hér með seinasta pistli ársins LOKIÐ.

**Hafið það gott**


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.12.2007 13:18:38 / anrib

kannski komin tími á eitt jóla,,,

daginn, daginn, daginn...sagði gæinn þegar sprakk í honum maginn.

 

Gleðileg jólin, vonandi höfðu allir það gott.

Ég og mínir höfðum það rosa gott, við fórum með Halla, Krisjáni og Birni ásgeiri að velja okkur jólatré á þorláksmessudegi, skreyttum svo tréð og vöktum aðeins frameftir, á aðfangadah vorum við hjá mömmu og pabba og borðuðum þennan líka dýridis mat og með honum, opnuðum pakkana, ég fékk svaka svona hrærivéla og mixara græju og er ekkert ´smá sátt, svo fékk ég konfekt, tvær bækur, ilmvarn, body lotion og showe gel ilminn með elizabeth arden, hann er geggjaður, svo var Halli svo góður að gefa mér hugo boss ilminn og bodylotini og bókina postulín, ég er mjög sátt við það, svo fékk ég einhvað meira sem ég nenni ekki að þylja upp. krakkarnir fengi einnig helling af gjöfum og vill ég nota tækifærið og þakka öllum kærlega fyrir. ja ég fékk líka geggjað bjórglas frá Maríu, svo nú get ég byjrað að safna, þetta er svona lína.

Svo er maður búin að liggja í leti og borða á sig gat af góðum mat og öðru, ég hef látið nammið nánast alveg vera, fyrir utan einn og einn konfekt mola, duglega ég!!

En núna að heilsunni, ég er búin að vera hóstandi öll jólin og er enþá að !! þetta er ógeðslegt, Ármann er búinn að vera kvefaðastur í heimi um jólin og er ekkert að batna, svo fékk Hafdís hita í nótt og er ágætlega hress núna en með einhverjar kommur.

Ég er í fríi í dag en vinn á morgunn og fer svo aftur í frí, og áramótin á næsta leiti, veit ekki hvað maður gerir, borða allavega hjá gamla settinu, sé svo til um framhaldið, nenni engann veginn að pæla í því, ég hef ekki djammað núna í 3-4 ár á áramótum enda er maður með krakkana og svona.

en ætla að hrista af mér letinqa og taka aðeins til hérna.

L8ter


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 18
Klukkan